Velkomin á síðuna mína.Ég heiti Styrmir Barkarson og starfa við Holtaskóla í Reykjanesbæ. Þar kenni ég nemendum í 3.-6. bekk tónmennt, stjórna kór í 3.-5. bekk og sé um hljómsveitarval í 9. og 10. bekk. Auk þess er ég umsjónarkennari í 10. bekk og kenni þar samfélagsfræði og lífsleikni.
Ég nota upplýsingatækni talsvert við kennslu og hér á síðunni er að finna efni sem ég hef útbúið fyrir kennslustundir, svo sem söngtexta á glæruformi og vefleiðangra. Oft þegar ég vafra um netið sjálfum mér til skemmtunar eða fræðslu dett ég niður á eitthvað sem mig grunar að aðrir kennarar hefðu gaman af að nota, hvort sem þeir kenna sömu fög og ég eða önnur. Þá set ég inn tengil á efnið hér á síðuna svo aðrir geti notið þess líka. Þar sem ég er tiltölulega nýbyrjaður með síðuna er safnið ekki orðið stórt en um leið og eitthvað gamalt rifjast upp fyrir mér eða nýtt verður á vegi mínum, þá bæti ég því við. |





